Þegar skóli kaupir aðgang að Stoðkennaranum er hann í raun að kaupa aðgang fyrir valinn hóp nemenda að völdum námskeiðum. Þannig er aðeins greitt fyrir aðgang fyrir þá nemendur sem koma til með að nota efnið og að því efni sem mun nýtast viðkomandi nemendum og kennurum.
Þar sem hver og einn nemandi fær eiginn aðgang getur Stoðkennarinn haldið utan um einkunnir hvers og eins og veitt kennara upplýsingar um gengi sinna nema. Þannig getur kennari sett nemendum fyrir að vinna verkefni heima og farið yfir vinnuframlag hans á auðveldan og skjótan hátt.
Umsóknarferlið er einfalt og fljótlegt. Skólastjórnendur senda okkur nöfn og netföng þeirra kennara sem þurfa aðgang að vefnum. Við munum þá stofna aðgang fyrir kennara og senda þeim aðgangsorð sín. Kennarar geta svo sjálfir, á svæði kennara, búið til hópa og boðið nemendum að tengjast hópi og námskeiðum.
Smelltu hér til að fá upp verðskrá Stoðkennarans fyrir grunnskóla.